Ég hef löngum verið hrifin af ssk úrtökunni, þar sem mér finnst hún spegla það að prjóna tvær lykkjur saman mun betur en gamla íslenska aðferðin, þ.e. þessi þegar maður tekur eina óprjónaða, prjónar eina og setur svo þessa óprjónuðu yfir nýju lykkjuna. En það hefur samt alltaf pirrað mig svolítið hvað lykkjurnar geta orðið ójafnar þegar maður gerir ssk. En svo var mér bent á þessa aðferð sem ég verð að prófa ;)
Hér verður nú ekkert ofurprjónablogg, en hins vegar mun ég stundum henda hingað inn einhverjum fróðleik, sniðugum prjónaráðum sem ég uppgötva og einhverju öðru sem mér finnst voða sniðugt.
Thursday, September 15, 2016
Svona held ég á garninu
Ég byrja á því að leggja bandið svona um litla fingurinn. Þarna er ég að prjóna með magic loop aðferðinni.
Síðan læt ég bandið koma aftur yfir litla fingurinn og svo undir baugfingur (liggur þá í raun ofan á baugfingri ef hendinni er snúið við).
Svo kemur bandið yfir löngutöng (eða undir ef maður snýr hendinni við).
Þar næst fer það undir vísifingurinn (eða yfir ef maður snýr hendinni við).
Þá lítur þetta svona út þegar maður snýr hendinni við.
Hér sést svo hvernig bandið liggur þegar maður heldur á prjónlesinu.
Og svo er bara að fara að prjóna ;)
Subscribe to:
Posts (Atom)